Hvað eru margar Kröflur á jólatrénu? - Opið til kl. 18 í dag
This entry was posted on 22. December 2012
.Við erum búin að skreyta litla Kröflujólatréð okkar í Veiðibúðinni Kröflu Höfðabakka 3 og viðskiptavinir okkar eru þegar farnir að giska á hve margar Kröflutúpur eru á trénu.
Eftir jólin drögum við síðan út nafn heppins viðskiptavinar og sá hinn sami fær í verðlaun glæsilegt flugubox úr viði með glæsilegum Kröfluflugum.
Við erum með opið til kl. 18 í dag og við hvetjum veiðimenn til að mæta til okkar, kíkja á glæsileg jólatilboð okkar og taka þátt í getrauninni og telja kröflurnar á jólatrénu.