Árni fékk lax á Iðuna í Norðurá í morgun
This entry was posted on 5. June 2013
.Stjórn SVFR, Stangaveiðifélags Reykjavíkur, opnaði Norðurá í Borgarfirði í morgun og strax í þriðja kasti fékk Bjarni Júlíusson formaður 72 cm langa hrygnu á BEP flugu á Brotinu neðan við Laxfoss.
Þegar um klukkustund var liðin af veiðitímanum landaði Árni Friðleifsson, varaformaður SVFR, fallegri hrygnu á Iðu túpu frá Veiðibúðinni Kröflu og tók laxinn einnig á Brotinu. Var Árni um 10 mínútur að landa hrygnunni.
Eitthvað hefur sést af laxi í Norðurá en hún er mjög vatnsmikil. Var rennsli árinnar rúmir 60 rúmmetrar á sekúndu um miðnætti sl. en Norðurá fór hraðminnkandi í nótt og þegar þetta er skrifað hefur rennslið minnkað niður í rúma 50 rúmmetra og vatnsyfirborðið lækkað um rúma 10 cm í nótt.
Við erum í ágætu sambandi við veiðimenn við Norðurá og flytjum frekari fréttir og myndir um leið og þær berast okkur.