Risalax tók Iðuna í Norðurá - sá stærsti í langan tíma
This entry was posted on 6. June 2013
.
Elín Ingólfsdóttir lenti í ævintýri í opnun Norðurár í morgun þegar hún var við veiðar á Eyrinni neðan við Laxfoss. Elín, sem er eiginkona Harðar Birgis Hafsteinssonar stjórnarmanns í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, var með hina gjöfulu Kröfluflugu Iðu á taumendanum þegar 17-18 punda nýgenginn grálúsugur hængur þreif fluguna með miklum tilþrifum.
Lax Elínar er stærsti laxinn sem veiðst hefur í opnun Norðurár í einhver ár. Laxinn var 90 cm langur og hrikaleg sver og vel haldinn. Var það mat viðstaddra að hann hafi án efa verið 17-18 pund. Viðureignin við þennan mikla höfðingja var snörp og hafði Elín betur eftir um 15 mínútna viðureign. Eins og jafnan þá eru stærstu laxarnir klókir og þessi hængur á Eyrinni í morgun var engin undantekning. Hann fór með línuna bak við stein og þá komu funlaus handtök og þekking eiginmannsins sér vel og hann gat losað línuna.
Elín var ekki einungis með flugu frá okkur í Veiðibúðinni Kröflu heldur var hún með 9 feta hvíta Echo 3 flugustöng, hvíta að lit fyrir línu númer 8, frá Kröflu. Við viljum geta þess að Iðu og allar aðrar Kröfluflugur fá veiðimenn einungis í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3. Ef aðrar verslanir eru að selja okkar flugur er það í algjöru leyfis- og heimildaleysi. Og við segjum við veiðimenn: varist lélegar eftirlíkingar.
Stjórn stangaveiðifélagsins sem opnaði Norðurá í gærmorgun lauk veiðum á hádegi í dag og alls náðust 12 laxar á land og settu veiðimenn í mun fleiri. Í það minnsta 3 komu á þungar Iðutúpur og eitthvað urðu veiðimenn varir við og misstu fiska á Kolskegg.