Síðasta holl í Hítará fékk 16 af 28 löxum á Kröfluflugur
This entry was posted on 13. July 2015
.Það er kominn mikill lax í Hítará á Mýrum og síðasta holl sem var við veiðar í ánni um liðna helgi var með 28 laxa. 16 af þessum 28 löxum komu á Kröfluflugur sem eru aldeilis að slá í gegn í veiðinni þessa dagana.
Hollið í Hítará var eingöngu skipað konum. 13 laxar veiddust á Kolskegg, 2 laxar á Kröflu orange og einn á rauða Kröflu. Þetta er ekki í fyrsta skipti í sumar þar sem um helmingur afla hjá holli kemur á Kröfluflugurnar. Er skemmst að minnast mikils afla hjá holli í Langá fyrir viku síðan en þá komu um 20 laxar af 51 á Kröfluflugur.
Laxinn er að ganga af krafti á Jöklusvæðið. Borgar Antonsson leiðsögumaður setti í vænan 92 cm lax í þriðja kasti á Iðu í veiðistaðnum Hólaflúð og Björgvin Pálsson landaði fallegum laxi sem tók Kröflu orange í fyrsta kasti.
Minnum á að Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 1.