Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Fréttir - Krafla.is

  • Fjórir sóttu útboðsgögnin í Norðurá - Eitt tilboð yfir 100 milljónir - tvö tilboð með útlenska peninga

    Árni

    Árni Friðleifsson, varaformður SVFR, þreytir lax í Norðurá sem tók rauða Kröflu.

    Norðurá í Borgarfirði er komin í útboð og frestur til að bjóða í ána rennur út þann 20. janúar eða eftir slétta viku. Eftir samtöl við fjölmarga aðila í stangveiðinni vorum við á því að tvö tilboð myndu berast í ána, annað frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur og hitt frá sömu aðilum og eru með Kjarrá og Þverá á leigu. Það fyrirtæki heitir Starir ehf. Ekkert er þó fast í hendi og vera kann að fleiri aðilar hafi áhuga á Norðurá eins og virðist hafa komið á daginn.

    Forsvarsmenn fyrirtækja í laxveiðibransanum eins og Lax-á og Hreggnasa hafa lýst því yfir opinberlega að þeir hafi ekki áhuga. Allur þeirra tími fari í að rétta af skútuna eftir mikið tap sl. sumar. Þá hefur Þröstur Elliðason sagt það í viðtali við okkur að hann hafi alls ekki áhuga.

    Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur verið með Norðurá á leigu í 66 ár. Ýmislegt hefur gengið á í þeim samskiptum í gegnum árin eins og gefur að skilja en heimildir okkar segja að sjaldan eða aldrei hafi verið minni kærleikar með SVFR og Veiðifélagi Norðurár en einmitt nú. Ekki vitum við hverju er um að kenna. Viðbrögð bænda í Borgarfirði tala sínu máli. Beiðni SVFR um lækkun á samningi frá í vor var kolfelld á félagsfundi í haust og aðeins sjö aðilar í félaginu voru andsnúnir því að setja Norðurá í útboð og vildu semja við SVFR.

    Þrátt fyrir ört minnkandi veiði í Norðurá sl. sumar þegar rúmlega 900 laxar veiddust í ánni, en um 2300 sumarið 2011, svipað verð veiðileyfa og 20% hækkun á samningi milli ára, er þó nokkur sala í Norðurá næsta sumar og mörg bestu hollin eru þegar seld. Við vitum um marga veiðimenn sem ætla að tryggja sér leyfi í Norðurá næsta sumar ef það skildi gerast að einhver aðili annar en SVFR skildi fá ána á leigu. Þá búast menn við miklum hækkunum sumarið 2014 og eins gott að njóta Norðurár næsta sumar ef framundan eru mörg ár þar sem verðið verður ekki viðráðanlegt.

    Hvað sem öllum vangaveltum líður þá verður afar fróðlegt að fylgjast með gangi mála við Norðurá næstu dagana og við munum segja nýjustu fréttirnar hér á Krafla.is um leið og þær berast okkur.

  • Í minningu Gríms Jónssonar

    Grímur Jónsson.                                              Myndin er frá www.votnogveidi.is

    Grímur Jónsson.   Myndin er frá www.votnogveidi.is

    Grímur Jónsson, járnsmiður og veiðimaður er látinn.

    Vinátta okkar Gríms var frekar stutt en einlæg að sama skapi. Áratugum saman áttum við stopul og frekar stutt kynni en vissum þó alltaf hvor af öðrum.

    Fyrir nokkrum árum fékk ég þá hugmynd að skreyta fluguborðið í verslun okkar í Veiðibúðinni Kröflu í Höfðabakkanum með alvöru Snældum. Ég vildi gera þetta í samráði við höfundinn og hönnuðinn. Því var símtal til Gríms rökrétt framhald. Leyfið var auðfengið og þetta símtal markaði upphafið að afar traustri vináttu okkar. Ég mat það strax mikils við Grím að hann skildi leyfa mér að selja Snælduna og hann mat það afar mikils við mig að ég hafði fyrir því að spyrja um leyfi. Komu afar sterk viðbrögð hans mér reyndar í opna skjöldu. Nánar mun ég fjalla um þessi samskipti okkar og afrakstur þeirra fljótlega hér á Krafla.is

    Grímur Jónsson hannaði Snælduna árið 1984. Þessa miklu aflaflugu og var hún honum afar kær eins og nærri má geta. Grímur Jónsson vandi komur sínar í verslun mína síðustu æviár sín og ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að gefa honum kaffi og eiga við hann afar skemmtilegar, fróðlegar og langar samræður á kaffistofunni. Oftar en ekki bar Snælduna á góma enda lék hún oft aðalhlutverkið í fengsælum veiðiferðum Gríms. Eins og fleiri veiðimenn af sömu kynslóð var Grímur óspar að miðla af áratuga reynslu sinni af veiðiskap. Hann var alltaf tilbúinn að leiðbeina mönnum og kenna á árbakkanum og þeir eru margir veiðimennirnir sem eiga honum margt að þakka þegar fluguveiðin er annars vegar.

    Mér fannst það í raun og veru mikill heiður að svo mikill veiðimaður og örlagavaldur í íslenskri fluguveiði skyldi hafa á því áhuga að heimsækja mig reglulega í mína litlu og nýju veiðibúð og veita mér leyfi til að selja Snælduna. Báðir vorum við sérstaklega ánægðir með þetta vegna þess að þar með fékk Grímur vissa upphæð af hverri seldri Snældu í Kröflubúðinni.

    Þegar við hittumst voru það afar sérstakar stundir og oft fyrir margra hluta sakir. Grímur var góður vinur föður míns og hann sagði mér margar góðar og skemmtilegar sögur af þeirra viðskiptum. Grímur notaði oft Kröfluna og sagði mér margar skemmtilegar veiðisögur þar sem Kröflur í ýmsum litum komu við sögu. Strax þótti mér vænt um Grím og fyrr en varði varð til hjá mér hvatning til að upphefja þennan hógværa veiðimann og frábæra fluguhönnuð. Ég var ákveðinn í því að gera veg hans sem mestan innan fluguveiðinnar og aðstoða hann á allan þann hátt sem mögulegt var.

    Grímur eignaðist jörðina Hvalsá í Hrútafirði fyrir nokkrum áratugum en við þá undurfögru litlu bergvatnsá hafði ég notið uppeldis við veiðar með föður mínum, Kristjáni Gíslasyni, og þar veiddi ég minn fyrsta lax. Í Sandkvörninni skammt fyrir neðan Árbæjarfossinn. Faðir minn og félagar hans voru með Hvalsána á leigu um tíma áður en Grímur keypti jörðina. Löngum stundum rædum við Grímur um Hvalsána. Þótti mér afar vænt um þá miklu umhyggju sem hann sýndi ánni. Var það í góðum takti við þankagang föðurs míns og hans félaga við Hvalsá. Það voru ómetanlegar stundir sem við áttum saman á kaffistofunni þegar Hvalsá bar á góma. Við einhvern veginn tókumst báðir á flug. Áttum það sameiginlegt að umræðuefnið var okkur kærara en flest annað og væntumþykjan og virðingin var við öll völdin. Það var stórbrotið að heyra Grím lýsa því hvernig hann komst niður í gljúfrið ofarlega við Hvalsá á fjórhjólinu þegar fæturnir höfðu að mestu lokið sínu hlutverki. Eftir öll árin gat ég lýst aðstæðum með nokkuð nákvæmum hætti og við Grímur rötuðum saman veginn við ána og áhugi beggja var alveg ósnortinn.

    Grímur Jónsson var góður maður. Hann var einn af þessum gömlu góðu snillingum í fluguveiðinni sem því miður fer fækkandi. Með honum er genginn kær vinur margra og minningarnar eru margar og allar góðar.

    Ég votta aðstandendum hans samúð mína og bið þeim blessunar í framtíðinni.

    Blessuð sé minning Gríms Jónssonar.

    Stefán Kristjánsson

  • Glæsileg veiði á Kröfluflugur í Gljúfurá - ónýtar eftirlíkingarnar skiluðu engri veiði

    Birkir Björnsson með fallegan lax úr Gljúfurá á dögunum. Laxinn tók Kolskegg í rökkrinu með miklum látum.

    Birkir Björnsson með fallegan lax úr Gljúfurá á dögunum. Laxinn tók Kolskegg  í rökkrinu með miklum látum.

    Veiðimenn sem voru við veiðar í Gljúfurá í Borgarfirði 12. til 14. september sl. fengu mjög góða veiði og lentu í ævintýrum. Birkir Björnsson og veiðifélagi hans fengu 8 laxa en alls fékk hollið 11 laxa á tveimur dögum.

    Birkir og veiðifélaginn komu við í Veiðibúðinni Kröflu fyrir veiðitúrinn og keyptu sér nokkrar túpur, Kolskegg, Iðu og Skrögg meðal annars. ,,Þetta átti eftir að reynast okkur vel. Við veiddum fiska út um allt og flugurnar reyndust okkur mjög vel. Veiðifélagar okkar sem voru með hinar tvær stengurnar voru ekki eins heppnir en þeir voru ekki með flugur frá Veiðibúðinni Kröflu. Þeir voru með eftirlíkingar frá Veiðihorninu eða einhverri annarri veiðibúð og þessar flugur voru alls ekki að gefa," sagði Birkir Björnsson í samtali við Krafla.is

    Við höfum oft sagt frá því að eftirlíkingar af okkar flugum eru alls ekki að gefa sömu veiði og flugurnar frá okkur. ,,Þarna sáu menn þetta svart á hvítu," sagði Birkir. ,,Veiðifélagar okkar vissu ekki af Veiðibúðinni Kröflu við Höfðabkka og voru því alls ekki með nægilega góðar flugur meðferðis," sagði Birkir.

    Enn og aftur ítrekum við að Kröfluflugur, bæði Kröflurnar sjálfar, Iða, Kolskeggur, Skröggur og ótalmargar aðrar flugur okkar fást aðeins hjá okkur í Veiðibúðinni Kröflu.

    Mjög fljótlega birtum við nýja grein hér á Krafla.is um lögbrot Veiðihornsins, Sportbúðarinnar og fleiri veiðibúða varðandi vörumerkjalögin. Viðbrögðin við fyrstu grein okkar voru algjörlega mögnuð og enn þökkum við fyrir allan stuðninginn. Við munum einnig birta fljótlega myndir af lélegum og ónýtum eftirlíkingum af flugunum okkar sem Veiðihornið, Sportbúðin og fleiri veiðibúðir eru að selja undir okkar vörumerkjum.

    Birkir Björnsson hafði samband við okkur á Krafla.is eftir að frétt þessi birtist og vildi að það kæmi fram að hann gæti ekki staðfest að umræddar eftirlíkingar  í fréttinni hefðu verið keyptar í Veiðihorninu.

  • Birtingurinn er vitlaus í Kröfluflugurnar - Rauðskeggur og Bláskeggur eru að slá í gegn

    Þessi væni sjóbirtingur tók Rauðskegg í fyrsta kasti í gær í Eldvatnsbotnum.

    Þessi væni sjóbirtingur tók Rauðskegg í fyrsta kasti í gær í Eldvatnsbotnum.

    Við erum að heyra víða sögur af veiðimönnum sem hafa verið að gera ágæta veiði í sjóbirtingi undanfarið. Og oftar en ekki eru Kröfluflugur að koma þar við sögu enda afar góðar flugur í birting ekki síður en laxinn.

    Tvær af nýju flugunum sem komu til sölu í Veiðibúðinni Kröflu í sumar, Rauðskeggur og Bláskeggur, hafa verið að skila mjög góðri veiði í mörgum ám í sumar. Veiðimenn við Iðu fengu laxa á Rauðskegg og Bláskegg á dögunum. Þar af voru vænn hængur sem er stærsti laxinn til þessa í veiðibókinni við Iðu í sumar og tvær tveggja ára hrygnur sem fengust á Bláskegg.

    Nýjasta fréttin úr sjóbirtingsveiðinni er frá Eldvatnsbotnum en þar réðst vænn sjóbirtingur með miklum látum á Rauðskegginn. Við höfum einnig frétt af mjög góðri sjóbirtingsveiði í Húseyjarkvísl þar sem Kröfluflugur hafa komið mikið við sögu.

    Minnum veiðimenn á að Kröfluflugurnar fást bara í Kröflubúðinni Höfðabakka 3.

Hlutur 53 til 56 af 203

Síða:
  1. 1
  2. ...
  3. 12
  4. 13
  5. 14
  6. 15
  7. 16
  8. ...
  9. 51
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík