Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Fréttir - Krafla.is

  • Aðeins 3 dagar eftir af Kröflugosi - aukinn afsláttur og nú hægt að gera ótrúleg kaup

    Kröflugosið er ennþá í fullu fjöri í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3 en því lúkyr á sunnudaginn.

    Kröflugosið er ennþá í fullu fjöri í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3 en því lúkyr á sunnudaginn.

    Nú eru aðeins 3 dagar eftir af Kröflugosinu 2013. Núna síðustu dagana gefum við i og aukum við afsláttinn sem var þó góður fyrir. Við minnum á að allar vörur í netverslun okkar hér á Krafla.is eru á Kröflugosverði næstu daga en Kröflugosinu í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabkka 3, lýkur á sunnudaginn.

    Meðal annars bjóðum við glæsilegt úrval af Kröfluflugum í hinum ýmsu boxum á allt að 50% afslætti og enn er hægt að gera dúndurkaup í alls kyns veiðidóti fyrir vertíðina sem nálgast óðfluga. Enn eigum við eftir eitthvað af vöðlujökkum á aðeins 11 og 17 þúsund en rétt verð á jökkunum er rúm 30 þúsund og rúm 60 þúsund. Vöðlur og vöðluskór eru á 20% afslætti næstu 3 daga.

    20 glæsilegar laxaflugur á miklum afslætti og fluguboxið fylgir frítt með næstu þrjá daga.

    20 glæsilegar laxaflugur á miklum afslætti og fluguboxið fylgir frítt með næstu þrjá daga.

    Í stöngum erum við með einhendur í lax- og silungsveiði á innan við 10 þúsund krónur og 20% afsláttur er af öllum Echo flugustöngum næstu 3 dagana. Fluguhjól eru frá rúmum 3 þúsund krónum og öll Echo fluguhjól á 20% afslætti út Kröflugosið en því lýkur á sunnudaginn. Einnig er hægt að gera mjög góð kaup í flugulínum en þær eru á allt að 60% afslætti.Við viljum hvetja veiðimenn til að mæta á staðinn og gera frábær kaup. Það er opið á föstudag klukkan 11 til 18, laugardag frá klukkan 11 til 16 og á sunnudaginn frá klukkan 13 til 16.

  • Flugurnar vekja mikla athygli á Kröflugosinu - útsalan á fullu í Kröflu um helgina og allar vörur hér á Krafla.is á útsölu

    Borgar Antonsson með 20 punda lax sem tók Kröflu orange í Breiðdalsá í fyrra.

    Borgar Antonsson með 20 punda lax sem tók Kröflu orange í Breiðdalsá í fyrra.

    ,,Þetta er búið að fara fram úr okkar björtustu vonum og það hafa margir ánægðir veiðimenn farið frá okkur undan farna daga eftir að hafa gert frábær kaup á Kröflugosinu," segir Stefán Kristjánsson hjá Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

    Flugurnar okkar hafa vakið sérstaka athygli en þær eru nú í fyrsta skipti fáanlegar á góðu afsláttarverði. Rétt er að vekja athygli á því að allar vörur hér á Krafla.is eru á útsölu.

    Kolskeggur, Iða og allar hinar léttu túpurnar eru á sérstöku afsláttarverði þessa dagana hjá Veiðibúðinni Kröflu.

    Kolskeggur, Iða og allar hinar léttu túpurnar eru á sérstöku afsláttarverði þessa dagana hjá Veiðibúðinni Kröflu.

    ,,Við erum að selja þær í lausu en einnig í sérvöldum boxum sem veiðimenn hafa kunnað vel að meta. Við erum með sérstakt úrvalsbox fyrir silungsveiðimenn og mjög fallegt úrval fyrir laxveiðimenn sem nýtist mönnum nánast hvar sem er. Þessum boxum fylgja svo ókeypis flugubox á meðan birgðir endast. Þetta eru afar sterkar og vandaðar flugur sem fást bara hjá okkur og því um að gera fyrir veiðimenn að kíkja við," segir Stefán.

    Það er margt fleira í boði á Kröflugosinu en flugurnar. Enn eru stengur á mjög góðu tilboðsverði, fluguhjól og línur á miklum afslætti og vöðlur og skór. Einnig eru vatnsheldir vöðlujakkar til frá rúmlega 10 þúsund krónum og undirfatnaður á miklum afslætti. Þá er auðvitað ónefnt ýmislegt smádót sem allt er á góðum afslætti, svo sem túpukrókar, grubber hnýtingakrókar, taumaefni og margt margt fleira.

    Kröflugosið er í gangi frá klukkan 11 til 18 virka daga. Um helgina verður opið frá klukkan 11 til 16 á laugardag og á sunnudag frá klukkan 13 til 16.

  • Mikið fjör á Kröflugosinu í Höfðabakka 3 - Kröflugosið líka á netinu

    Þetta glæsilega fluguúrvl er til sölu á Kröflugosinu á 30% afslætti og fluguboxið fylgir frítt með.

    Þetta glæsilega fluguúrvl er til sölu á Kröflugosinu á 30% afslætti og fluguboxið fylgir frítt með.

    Nú erum við búin að setja mikið af vörum sem eru á útsölunni hjá okkur inn á www.Krafla.is undir flipanum ,,Kröflugos" þannig að nú geta enn fleiri nýtt sér það frábæra úrval sem er á Kröflugosinu.

    Fjölmargir veiðimenn lögðu leið sína til okkar um helgina og gerðu sannkölluð reyfarakaup. Við höfum varla undan að raða flugunum okkar í box en þær eru nú á 10-40% afslætti. Þá er búin að vera mikil sala á vöðlum, vöðluskóm, veiðifatnaði, flugulínum, flugustöngum og alls kyns veiðidóti enda afslátturinn mjög góður.

    Enn eigum við eftir mjög góðar vörur á hreint frábæru verði. Þar má nefna einhendur í silungsveiði á innan við 10 þúsund krónur og hágæða fluguhjól á langt innan við 20 þúsund krónur. Sjón er sögu ríkari.

    Við opnum á ný í fyrramálið og opið verður alla næstu viku frá klukkan 11 til 18. Um næstu helgi verður opið frá klukkan 11 til 16 á laugardag og 13 til 16 á sunnudaginn.

  • Gos hafið í Kröflu - Allt að 60% afsláttur af öllum vörum - 10-30% afsláttur af Kröfluflugunum vinsælu - hægt að gera hrikaleg góð kaup

    Kröfluflugurnar er nú hægt að fá á frábæru verði í Veiðibúðinni Kröflu.

    Kröfluflugurnar er nú hægt að fá á frábæru verði í Veiðibúðinni Kröflu. Kröflurnar og allar aðrar flugur frá Kröflu fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

    Það er hafið gos í Kröflu, það er að segja útsala í Veiðibúðinni Kröflu að Höfðabakka 3. Allar vörur í versluninni eru á útsölu og afslátturinn er 10-60%.

    ,,Það er greinilega að koma veiðihugur í menn og við erum núna að rýma til fyrir nýjum vörum sem við fáum í vor. Það er hægt að gera frábær kaup hjá okkur og nú komum við til móts við veiðimenn og erum í fyrsta skipti á Kröflugosi með mjög góðan afslátt af öllum vinsælu Kröfluflugunum sem fást hvergi annars staðar en hjá okkur," segir Stefán Kristjánsson hjá Veiðibúðinni Kröflu.

    Á útsölunni eru í boði vel útilátin box með hinum ýmsu flugum og er þá afslátturinn allt að 30%. Þá er mikill afsláttur af taumaefni og öllu smádóti og góður afsláttur af vöðlum, vöðluskóm, stöngum og hjólum og bara öllu því sem menn þurfa í veiðitúrinn.

    Fluguboxin eru glæsileg og á frábæru verði. Hægt er að fá nöfn veiðimanna eða myndir áletruð á boxin.

    Fluguboxin eru glæsileg og á frábæru verði. Hægt er að fá nöfn veiðimanna eða myndir áletruð á boxin.

    Opið er í Kröflu frá klukkan 11 til 18 virka daga, 11 til 17 á laugardögum og 13 til 17 á sunnudögum á meðan á Kröflugosinu stendur.

    Sími 587-9500.

    e-mail - [email protected]

    Fyrstur kemur fyrstur fær.

Hlutur 41 til 44 af 203

Síða:
  1. 1
  2. ...
  3. 9
  4. 10
  5. 11
  6. 12
  7. 13
  8. ...
  9. 51
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík