Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Fréttir - Krafla.is

  • Laxinn mættur í Stóru Laxá - missti tvo á Iðuna

    Iðan var mjög gjöful í opnun Norðurár og nú nýverið tóku hana tveir laxar á fjórða svæðinu í Stóru Laxá.

    Iðan var mjög gjöful í opnun Norðurár og nú nýverið tóku hana tveir laxar á fjórða svæðinu í Stóru Laxá.

    Laxinn er mættur í Stóru Laxá í Hreppum. Veiðimenn sem voru við veiðar á fjórða og efsta svæði árinnar sáu eitthvað af laxi á svæðinu en ekki mikið. Þeir settu í tvo laxa á Iðu keilutúpu en þeir höfðu báðir betur.

    Kröfluflugurnar eru að gefa mjög góða veiði hjá þeim sem nota þær. Við minnum veiðimenn á að Kröfluflugurnar eins og þær eiga að vera, sterkar og endingargóðar, fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu Höfðabakka 3. Við höfum heyrt margar sögur af lélegum eftirlíkingum í öðrum verslunum og viljum taka fram að þær flugur eru alls ekki frá okkur komnar.

    Veiðin byrjaði með látum í Langá á Mýrum í morgun en á morgunvaktinni komu 22 laxar á land. Sögðu menn töluvert af fiski í ánni og ekki hvað síst á miðsvæði árinnar.

  • Frábær laxveiði í mörgum ám og laxinn snemma á ferðinni

    Hörður Birgir Hafsteinsson og kona hans, Elín Ingólfsdóttir, með glæsilegan lax úr Norðurá nýverið en laxinn tók Iðu keilutúpu.

    Hörður Birgir Hafsteinsson og kona hans, Elín Ingólfsdóttir, með glæsilegan lax úr Norðurá nýverið en laxinn tók Iðu keilutúpu.

    Laxveiðitímabilið byrjar með ótrúlegum látum þetta árið. Á fyrsta degi í Elliðaánum í gær veiddst 31 lax þrátt fyrir að nánast byrjendur í laxveiði væru við veiðar allan daginn. Sautján af þessum löxum fengust á flugu sem er óvenju hátt hlutfall fyrstu dagana í Elliðaánum.

    Hítará á Mýrum hefur einnig opnað með stæl en opnunarhollið í ánni var í afar góðum málum. Við vissum af 16 löxum þegar hollið var ekki búið með tímann. Í fyrra veiddust 2 laxar í opnunarhollinu í Hítará.

    Veiði hefur einnig gengið ágætlega í Norðurá þrátt fyrir að taka hafi dottið verulega niður eftir að opnunarhollið lauk sér af í ánni. Opnunarhollið fékk 25 laxa og komu 9 laxar á Kröfluflugur. Þar á meðal voru Iða, Kolskeggur og rauð Krafla. Síðast þegar við fréttum var Norðurá að skríða í 200 laxa og segja menn að mikill fiskur sé í ánni miðað við árstíma.

    Laxinn virðist vera óvenjusnemma á ferðinni þett sumarið. En hver er átæðan? Svarið liggur auðvitað ekki fyrir en gott vor eða afar hagstæðar aðstæður í sjónum hljóta að vera atriði sem vega þungt.

  • Fullt af fiski í Norðurá - 16 laxar á land á fyrsta degi -15 tóku Kolskegg og Iðu

    Guðmundur Stefán Maríasson með fallega hrygnu við Réttarhylsbrotið við Norðurá í gær. Laxinn tók Iðu keilutúpu frá Veiðibúðinni Kröflu.

    Guðmundur Stefán Maríasson með fallega hrygnu við Réttarhylsbrotið við Norðurá í gær. Laxinn tók Iðu keilutúpu frá Veiðibúðinni Kröflu.

    ,,Þetta hefur verið mjög gaman og það er mikið af fiski á ferðinni. Ég setti í fimm laxa seinni partinn í dag og náði einum á Iðuna við Réttarhylsbrot eftir að hafa misst tvo á Berghylsbroti. Laxarnir fjórir sem ég missti tóku allir Kolskegg," sagði Guðmundur Stefán Maríasson fyrrverandi formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur í samtali við Krafla.is í gærkvöld en þá hafði hann nýverið hætt veiði kl. 22.

    Kröfluflugur komu mikið við sögu við Norðurá í gær. Alls komu 16 laxar á land og helmingur þeirra, 8 laxar komu á Kröfluflugurnar Iðu og Kolskegg. Mikið er gengið af fiski í Norðurá en seinni partinn í gær kólnaði nokkuð og áin var hraðminnkandi.

    Guðmundur Stefán var ekki sá eini í stjórnarhollinu sem varð vel á Kröfluflugurnar í gær. Hörður Birgir Hafsteinsson, nýliði í stjórn SVFR og að veiða í Norðurá í fyrsta skipti, setti í 7 laxa í gær en var óheppinn og náði ,,aðeins" þremur á land. Hörður fékk tvo laxa fyrir hádegi á Iðu keilutúpu á Bryggjunum og eftir hádegi fékk hann þriðja laxinn á Brotinu. ,,Við enduðum síðan á Eyrinni og þar var mikið líf. Ég tók samt aðeins tvö rennsli en setti í fjóra laxa á Kolskegg. Ég komst mislangt með laxana en þeir höfðu allir betur," sagði Hörður sem var fárveikur við veiðarnar í gær með skæða flensu en náði samt þessum frábæra árangri að setja í sjö laxa á opnunardeginum. ,,Þetta var mjög líflegt og það er fullt af fiski i ánni," sagði Hörður Birgir.

    Kröfluflugurnar Kolskeggur og Iða slógu sem sagt algjörlega í gegn á bökkum Norðurár í gær. Alls tóku þær í það minnsta 15 laxar og hefði smá heppni verið með í för þá hefðu laxarnir sem komu á land hæglega geta orðið 25 í stað 16.

    Tekið skal fram að við vorum aðeins í sambandi við nokkra veiðimenn í gær í stjórnarhollinu þannig að það er alveg möguleiki á að fleiri veiðimenn hafi lent í ævintýrum hafi þeir á annað borð reynt Kröfluflugurnar.

  • Frábær opnun í Norðurá, Iðan og Kolskeggur gefa vel

    Elín Ingólfsdóttir með 78 cm hrygnu sem tók Kröflufluguna Iðu á Bryggjunum í Norðurá í dag.

    Elín Ingólfsdóttir með 78 cm hrygnu sem tók Kröflufluguna Iðu keilutúpu á Bryggjunum í Norðurá í dag.

    Opnunin í Norðurá er að verða sú besta í nokkra áratugi og stefnir í metopnun ef fram heldur sem horfir.

    11 laxar veiddust fyrir hádegi, þar af tveir á svæðinu kennt við Munaðarnes. Af þessum löxum vitum við að í það minnsta fjórir komu á Kröfluflugurnar Iðu og Kolskegg keilutúpur.

    Myndin sem hér fylgir með er af Elínu Ingólfsdóttur en hún fékk þessa glæsilegu 78 cm hrygnu á Bryggjunum á Iðu.

    Við birtum nánari fréttir í kvöld.

Hlutur 69 til 72 af 203

Síða:
  1. 1
  2. ...
  3. 16
  4. 17
  5. 18
  6. 19
  7. 20
  8. ...
  9. 51
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík