Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Fréttir - Krafla.is

  • Síðasta holl í Hítará fékk 16 af 28 löxum á Kröfluflugur

    Veiðikona með 68 cm lax sem hún veiddi á rauða Kröflu í Hítará um helgina. Veiðikona með 68 cm lax sem hún veiddi á rauða Kröflu í Hítará um helgina.

    Það er kominn mikill lax í Hítará á Mýrum og síðasta holl sem var við veiðar í ánni um liðna helgi var með 28 laxa. 16 af þessum 28 löxum komu á Kröfluflugur sem eru aldeilis að slá í gegn í veiðinni þessa dagana.

    Hollið í Hítará var eingöngu skipað konum. 13 laxar veiddust á Kolskegg, 2 laxar á Kröflu orange og einn á rauða Kröflu. Þetta er ekki í fyrsta skipti í sumar þar sem um helmingur afla hjá holli kemur á Kröfluflugurnar. Er skemmst að minnast mikils afla hjá holli í Langá fyrir viku síðan en þá komu um 20 laxar af 51 á Kröfluflugur.

    Veiðimaður með 92 cm lax sem tók Iðuna í veiðistaðnum Hólakvörn á Jöklusvæðinu. Veiðimaður með 92 cm lax sem tók Iðuna í veiðistaðnum Hólakvörn á Jöklusvæðinu.

    Laxinn er að ganga af krafti á Jöklusvæðið. Borgar Antonsson leiðsögumaður setti í vænan 92 cm lax í þriðja kasti á Iðu í veiðistaðnum Hólaflúð og Björgvin Pálsson landaði fallegum laxi sem tók Kröflu orange í fyrsta kasti.

    Minnum á að Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 1.

  • Vision vörurnar núna fáanlegar í Kröflu

    Keeper fluguveiðipakkinn frá Vision er vel útilátinn og á einstaklega hagstæðu verði. Keeper fluguveiðipakkinn frá Vision er vel útilátinn og á einstaklega hagstæðu verði.

    Vision veiðivörurnar frá Finnlandi eiga marga trygga aðdáendur hér á landi og nú geta þeir og allir aðrir unnendur fluguveiðinnar tekið gleði sína á ný.  Vision vörurnar eru nú aftur fáanlegar í  Reykjavík en aðeins í Veiðibúðinni Kröflu að Höfðabakka 3.

    Við hjá Kröflu fengum stóra sendingu frá Vision á dögunum og enn meira er á leiðinni til okkar. Við bjóðum upp á úrval af Vision vöðlum, stöngum, hjólum, gleraugum og línum ásamt ýmsu öðru og einnig mjög góðan Primaloft fatnað sem er á mjög hagstæðu verði. Þá erum við einnig með mikið úrval af smádóti fyrir veiðitúrinn frá Vision.

    Í dag laugardag er opið hjá okkur til kl. 14 og lengur ef þurfa þykir. Við höfum stundað fluguveiði í 45 ár og miðlum glöð af reynslu okkar til veiðimanna á öllum aldri.

    Síminn hjá okkur er 587-9500 eða 698-2844 og opið er virka daga frá kl. 10 til 18..

  • Kröfluflugurnar eru að skila góðri veiði - 10 laxar á Kolskegg í Langá

    Þorsteinn Guðmundsson með gullfallega 13 punda hrygnu sem tók Kröflufluguna Iðu í Húseyjarkvísl nýverið. Þorsteinn Guðmundsson með gullfallega 13 punda hrygnu sem tók Kröflufluguna Iðu í Húseyjarkvísl nýverið.

    Laxveiðivertíðin fer víða ágætlega af stað og nú berast fréttir af ágætri veiði í Norðurá, Langá og fleiri ám. Menn bíða afar spenntir eftir smálaxinum sem á að láta sjá sig þessa dagana í kjölfar stórstraumsins núna um helgina.

    Víða berast fréttir af mjög góðri veiði á Kröfluflugurnar og eru þær að slá í gegn í sumar sem aldrei fyr. Kolskeggur fer þar fremstur í flokki ásamt Iðu og Kröflunum í ýmsum litum.

    Í Laxá í Dölum voru franskir veiðimenn með þriggja daga holl nýverið. Fengu þeir þrjá laxa og alla á Kolskegg. Grétar Þorgeirsson, staðarhaldari við Laxá í Dölum, sagði í samtali við Krafla.is í gær að hann hefði séð ágætar torfur af laxi ganga í Laxá á flóðinu í gærkvöld.

    Í fyrradag komu 7 laxar á land í Ytri Rangá og 5 af þeim voru á Iðu.

    Holl sem var í Húseyjarkvísl í Skagafirði nýverið fékk 3 laxa og alla á Kröfluflugur. Fiskarnir fengust á Iðu, Kröflu orange og Kolskegg.

    Í dag fréttum við af mikilli veiði á Kolskegg í Langá. Veiuðimaður sem við töluðum við í hvíldartímanum í dag var kominn með 6 laxa og alla á Kolskegg. Tveir aðrir veiðimenn í Langá sem við fréttum af voru með 4 laxa og alla á Koskegg.

    Við munum halda áfram að segja frekari fréttir af laxveiðinni hér á Krafla.is og birtum fljótlega nýjar tölur frá Langá á Mýrum. Og að venju minnum við á að Kolskeggur, Iða og allar hinar Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

    Að framansögðu má ljóst vera að það ætti að borga sig að kíkja til okkar í Kröflu áður en haldið er til veiða. Við verðum með opið á morgun sunnudag frá kl. 13 og fram eftir degi.

    Þess má geta að flugusala hefur verið mjög mikil hjá okkur í Kröflu það sem af er vori og sumri og er ekki of mikið til af sumum tegundum. Ný flugusending er væntanleg fljótlega.

  • Síðasta holl með 6 laxa í Hítará - helmingur á Kröfluflugur

    Steinar Petersen með fyrsta lax sumarsins úr Langadrætti í Hítará þetta sumarið. Laxinn tók 1/4" rauða Kröflu keilutúpu. Steinar Petersen með fyrsta lax sumarsins úr Langadrætti í Hítará þetta sumarið. Laxinn tók 1/4" rauða Kröflu keilutúpu.

    Hítará á Mýrum hafði á hádegi í dag gefið 20 laxa og er það álíka veiði og á sama tíma í fyrra. Aðstæður allar eru þó mun erfiðari nú en vatn er nálægt því að vera feti hærra í ánni í dag og á sama tíma í fyrra. Gerir það allar tilraunir veiðimanna erfiðari en ella væri.

    Fjórða holl sumarsins lauk veiði á hádegi í dag, föstudag, og náði 6 löxum. Smálaxinn virðist vera að mæta en aðeins einn af þessum 6 löxum var tveggja ára lax. Eins árs fiskarnir 5 voru vel haldnir, 5-7 pund og flestir lúsugir. Laxinn tók reyndar mjög grannt og misstu veiðimenn marga laxa eftir stuttar en snarpar viðureignir. Mætti líklega nefna til sögu 12-15 slík dæmi.

     

    Brúarfoss í Hítará. Myndin er tekin í gær. Mikið vatn en laxinn fer létt með að ganga fossinn við þessar aðstæður. Brúarfoss í Hítará. Myndin er tekin í gær. Mikið vatn en laxinn fer létt með að ganga fossinn við þessar aðstæður.

    Spekingar tengdir Hítará til margra ára hafa haldið á lofti efasemdum um að lax gengi Brúarfossinn við veiðihúsið í miklu vatni eins og er í Hítará í dag. Síðasta holl afsannaði allar slíkar vangaveltur og fullyrðingar. Steinar Petersen, reyndur og afar snjall fluguveiðimaður, landaði í gær fyrsta laxi sumarsins í hinum fræga veiðistað Langadrætti. Laxinn var 5 pund, ekki lúsugur og tók rauða Kröflu 1/4 keilutúpu. Þar með var öllum ljóst að lax gengur Brúarfossinn þó vatnið sé mjög mikið. Og þegar 5 punda smálax kemst fossinn er hann auðvelt verkefni fyrir stælta tveggja ára laxa. Var það reyndar skoðun allra veiðimanna er skipuðu umrætt 6 laxa holl í Hítará að umræddur Brúarfoss væri ekki alvarleg hindrun á vegi laxfiska.

    Veiðimenn sem könnuðu efra svæði Hítarár í gær urðu varir við lax í Markafljóti sem er afar snotur veiðistaður skammt fyrir neðan Grettisbæli sem er ekki síðri veiðistaður. Lax tók í gær Kröflufluguna Kolskegg í Markafljóti en takan var grönn og dugði skammt. Í morgun kastaði Gunnar Örn Pétursson Kolskegg í Markafljótið og leið ekki á löngu þar til silfraður smálax ,,straujaði" Kolskegginn með miklum látum. Þetta var skrautleg taka og eftirminnileg að sögn Gunnars Arnars sem er flestum hnútum kunnugur þegar kemur að fluguveiði og afar snjall og reyndur veiðimaður.

    Breiðin er einn þekktasti veiðistaður Hítarár. Hér má sjá hve mikið vatn var í Hítará í dag. Kjörvatn líklega feti lægra. Breiðin er einn þekktasti veiðistaður Hítarár. Hér má sjá hve mikið vatn var í Hítará í dag. Kjörvatn líklega feti lægra.

    Ekki virðist vera mikið um lax á neðra svæði Hítarár en svo virðist sem nokkrir laxar gangi í ána á hverju flóði. Veiðimenn í síðasta holli urðu ekki varir við lax í Steinastreng. Reyndar afar erfitt að vaða út á heppilegan stað til að ná góðum köstum á hylinn. Túnstrengir, allir þrír, voru þaulreyndir án árangurs. Kverkin var lífleg annað veifið en langir líflausir kaflar inn á milli. Breiðin galt fyrir mikið vatn. Stöku fiskur var þó farinn að tolla þar undir lok veiðitímans þegar rennsli árinnar lækkaði örlítið en við aðstæður dagsins í dag heldur Breiðin varla laxi.

     

     

     

Hlutur 5 til 8 af 203

Síða:
  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. 4
  5. 5
  6. ...
  7. 51
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík